Jæja eftir mikið tuð frá vissum aðilim Auður og Anna!!!

Nú er ég loksins komin til Danmerkur. Það tók sinn tíma hehe. Ég lagði af stað í morgun, notla svaf aðeins yfir mig en ég komst. Kom upp á flugvöll rétt slapp áður en 3 stórar rútur fullur af ferðalöngum fylltu flugvöllinn. Var nú ekkert hoppandi kát að kveðja mömmu og pabba. Var að hugsa um að hætta við að fara. Langaði ekkert voðalega að fara frá þeim. Erfitt að fara svona einn og ekkert vita hvernig þetta verður allt saman. Flugið gekk vel. Feldi nokkur tár þegar ég var að fara í loftið. Gat sofið í fluginu sem gerist eila bara aldrei!! Það var alveg nauðsynlegt því ég svaf ansi lítið heima um nóttina. Jæja ég lent á kastrup. Fyrsta taskan sem ég sé er mín taska svo ég vippaði henni af mér tilþrifum og dröstlaðist svo með hana og fleiri til að ná í kerru sem var notla ógó langt í burtu!! Svo fór ég beint og keypti mér kaffi. Varð að fá svoleiðis!! Fór svo í lestarmiðakaup og reyndi að skilja það sem konan var að segja hvernig ég ætti að taka lestina til Hellerup og skipta um lest sem færi til Hillerøp sem færi svo til Holte. Ég alla vegna skildi hana þannig. Ég hugsaði með mér að ég gæti nú örugglega fundið þetta út sjálf. Fór niður í metroið og tók lesti til Køpenhavn H sem að var mjög einfalt þar sem ég stökk út og fór aðeins inn á lestarstöðina þar sem að ég sá mér til mikillar gleði að á brautarpallinum við hliðin á var lest að fara til Holte svo ég skellti mér bara í hana. Var með 3 töskur og ein lítin poka og það er alveg magnað hvað þetta var erfitt að koma þessu öllu fyrir!!Svo var ég komin til Holte. Byrjaði að labba af stað og í þá átt sem mér fannst svona líta út fyrir að vera rétt. Labbaði og labbaði og labbaði með eina bilaða hjólatösku, eina tölvutösku og  eina íþróttatösku, Þetta var vesen!!! Svo ákvað ég að beyja niður eina götuna og labba og labba og labba helduru ekki að ég hafi bara rambað á rétta götu. Mér leið eins og í bíómynd, koma mér á einhvern stað sem ég hef varla séð áður með fullt af drasli og var alveg að pissa á mig!! En þetta endaði allt vel ☺ Komst loks að skólanum og sat þar fyrir utan þegar að hún Inge-Lise kom og opnaði fyrir mig og byrjaði að tala dönsku. Ég held að hún hafi séð hvað ég var stórt spurningamerki í framan því að hún spurði mig hvort að ég talaði dönsku. Uuuuu nei geri það ekki. Ég fékk svo herbergið mitt þar sem ég er ein vúhú ☺ Var ekkert smá ánægð. Svo lagði ég mig bara. Var alveg búin. Svo varð klukkan fimm og ég ákvað að fara niður og skoða fólkið og húsið. Þar hitti ég Ingeliss sem er skólastjórin held ég Katrine svo bara man ég ekki almennilega hvað hinar heita. En það kemur með tímanum. Svo var ég svo heppin að hitta skólasystur mínar. Þær eru frá 15 ára held þær séu alveg 3 og svo 17 upp í 19 ára. Þetta eru þær sem ég era ð fara að búa með!! OMG!! Gelgjuhátíð dauðans hérna!!! Svo koma fleiri á morgun verður spennandi að vita hvort að þetta verða bara gelgjur á gelgjur ofan eða eitthvað efnilegt folk inn á milli. Er ekki að nenna einhverri gelgjumenningu. En núna ætla ég að fara að sofa. Verð að hvíla mig fyrir morgundaginn. Ansi strembið að tala ekki dönsku. Þarf alveg að einbeita mér að hlusta sem getur verið soldið mikið erfitt fyrir mig. En þetta er ferðasagan og kannski skrifa ég bráðum aftur ☺

Góða kvöldið. Núna eru tveir dagar búnir af skólanum og strax á morgun er ég að fara á tískusýningu. Það er geggjað spennnó. Það er nokkuð sem er kallað CIFF: Copenhagen International Fashion Fair sem er verið að sýna sem sagt vor og sumartísku 2009. Vera nógu snemma í því ☺ Ég man þegar RÚV var alltaf með svona tískuþætti á fimmtudags eða miðvikudagskvöldum sem að mig minnir að Katrín hafi verið með. Væri til í að fá það aftur. Það var mjög skemmtilegt. En ég er alla vegna að fara á þessa sýningu á morgun og ætla svo að vera eftir í Kaupmannahöfn sem ég hlakka ansi mikið til. Þarf að kaupa mér sjampó og þvottaefni. Hehehe.
En ég er núna veit ég hvað hinir kennararnir heita. Það er hún Jette sem er svona textílhönnuðurinn í hópnum og svo Sidsel sem er saumakonan og fatahönnuður og hefur verið að vinna fyrir den Danske Radio og einhver leikhús líka, Katrine er svo líka saumakona. Skólasystkini mín eru öll yngri en ég nema ein Kélling. Hún verður líklegast með mér í herbergi. Vona að hún sé allt í lagi kona. Finnst ekkert gaman að snakka með henni en mar verður víst að láta sig hafa það. Það er einn strákur með okkur í skólanum hann Jóakim kann ekki að skrifa það á dönsku. Það er bara gaman. Ég er ekkert mikið að reyna að kynnast þessu fóli því að þá þarf ég að tala og ég er mjög mjög óörugg með þessa blessuða dönsku mina. Það vonandi kemur með tímanum.

Sumar

Já þá er sumarið bara komið :D Eða svona næstum því. Vorið alla vegna komið. Rosalega gott veður í dag og ég var ógeðslega dugleg að nýta daginn til fulls. Það er allt að gerast núna, ég að fara til Danmerkur í nám, Þórdís til Dublinar að vinna og Grós til London. Svo notla Kría systir til Uppsala. Bara geggjað. Ég er rosalega spennt fyrir því að flytja til Danmerkur. Bara geggjað :) Verður eitthvað algjörlega nýtt að vera alveg ein. Efa það að ég flytji til mömmu og pabba eftir þetta ár en maður verður víst að gera það þar sem mar á víst engan pening en það er seinni tíma vandamál. Stefnan er að vera bara ungur og hæfilega kærulaus næstu 2 árin. Þá kannksi fer maður að hugsa sinn gang og finna sér eitt stykki maka eða makka, hehehe.  Sætti mig vel við fagran makka. Kannksi eina borðtölvu eða svo sem er með geggjaðum klippi forritum og shit. Vá hvað mig langar það núna :D Alla vegna þá ákvað ég aðeins að skrifa hérna þar sem ég skrifa aldrei hérna. Það svo sem les þetta enginn en það er allt í lag ;) Einhver staðar verður maður að skrásetja líf sitt ;)

Takk takk

Búbba

Er að fara til útlanda!

OMG!!! Ég er að fara til útlanda í fyrramálið og ég er engan vegin að átta mig á því. Enn að jafna mig eftir helgina síðustu og það sorglega er að ég verð að jafna mig líklegast í mánuð!!! Ömurlegt! En það stoppar mann ekki :D Bara djamma meira ;) Hehehe :p Málið er að núna er ég með mission :D Ég á nenfilega vinkonur sem eru…. já ég ætla ekkert að nefna það en þeim vantar eitthvað og svo það sé ekki neitt flókið þá er best bara að fara á djammið og leita þar og ég lofa því að þær finna eitthvað :D Eitthvað er svo margt. Ekki það að mig vantar þetta líka en ég er í alvöru að hugsa um að gera ekkert svona fyrr en í fyrsta lagi í júní. Fyrsta lagi! Það er bannað að leggja fyrir mig gildrur!!!! Ég ætla ekki að lifa neinu nunnulífi en næstum því. Bara set þetta hér þá vitiði þetta ;)

Jæja ég ætla að fara að pakka eða eitthvað.

Gunnfríður semi-nunna ;)

Ritstífla

Já ótrúlegt en satt það hefur losnað um þessa líka miklu ritstíflu sem hefur verið að hrjá mig undanfarnar vikur, já kannski mánuði. Nú er svo komið að ég hef misst af öllum dögum sem ég get tuðað yfir eins og Valentínusardeginum og líka Bóndadeginum og konudeginum. Þannig að þá er ekkert tuð. Spurning um að finna einhvern annað til að tuða um. Humm… Ekki langar mig að skrifa um stjórnmálum eða átökin í heiminum svo það er tvennt eftir fræga fólkið og karlmenn. Humm.. aldrei skrifað um það hehe. Ok Karlmenn eru eitt stórt sykursætt vandamál. Mér finnst þeir æði (vandamál nr. eitt því að þeim líkar ekki öllum vel við mig). Get ekki lifað án þeirra en get ekki lifað með þeim. Þetta hljómar samt betur á ensku. Merkilegt nokk. MArgt sem hljómar miklu betur á ensku og annað meikar ekki sens á ensku sem eru samt alveg geggjað fyndið stundum þegar fólk er að bein þýða svona snildarlega ;) Jæja bara smá bloggbull. Þurfti aðeins að sýna lit hérna.

Sjáumst síðar

Gunnfríður

Verðlaun!!

Já mér finnst ég eigi skilið verlaun fyrir hvað ég skrifa sjaldan á þetta blogg. Lélagasti bloggari ársins er….. Gunnfríður Katrín Tómasdóttir!!! Reyndar er Anna ansi nálægt en það sem heldur henni upp er að hún er dugleg að kommenta!! DEM!! Verð að fara vera meira online!!

Annars var ég að pæla hvort að hægt sé að flokka ást undir geðveiki? Maður verður totally sick og er að gera alla geðveika í kringum sig! Talar ekki um annað en hann, hugsa ekki um annað en hann og þar fram eftir götunum. Sorglegt! Maður er samt alveg að hlusta hvað fólk er að segja við mann en maður einhvern veginn dettur bara út! “Já einmitt er það já en veistu hvað hann sagði í sms-inu áðan. OMG, hann er svo mikil dúlla og krútt.” Já góðir hálsar mér er flökurt að hugsa um hvað maður er veikur á geði í þessu ástandi. Skildi fólk fá örorkubætur fyrir að vera ástfangið? Bara pæla. Skildi maður bara fá einu sinni að vera ástfangin eða fær maður marga sénsa?Er bara ein sönn ást í lífinu? Og þeir sem skilja hafa ekki fundið þessa einu sönnu ást eða er hin sanna ást ekki til? Þarf maður að vinna mikið til að fá ástina eða er hún þarna bara og svo verður maður að vinna í henni til að halda henni við? Endilega ef þið hafið svör segið mér þau!

Önnur verlaun sem ég á svo sannarlega skilið eru hálfvita verlaunin! Ég er svo fljót að falla í einhverjar gildrur og er heila eilíf að komast úr þeim! Því hef ég ákveðið að ég ætla að læsa mig inni og éta eins og svín og ef þið viljið tala við mig þá verð ég örugglega í tölvunni. Ætla loka símanum!

Gunnfríður

Já jólahátið

Já nú fer að líða að því að það verði hægt að tala við mig á venjulegum tíma. Núna 23. des. fer ég í feitt jólafrí og svo er síðasti vinnudagur minn þann 30. des. Vá hvað ég hlakka til að fá fleiri en ein frí dag. Alltof langt síðan að það gerðist. En svo er djamm ársins að renna upp eftir tæpa tvo sólarhirnga. Fékk mér öllara áðan til a hita upp :p Það er bara hollt. Er alveg að missa mig í einhverri vitleysu á facebook, ekki hollt! Alltof ávanabindandi! En ég er að blogga fyrir hana Auði þar sem hún tók því svona vel að ég skildi biðja hana um að blogga ;) Svo vil ég líka tileinka Þórdísi þetta blogg því hún er æði! Ekki má heldur gleyma að hún Anna er að koma heim og er við hæfi að skrifa þessi orð til hennar einnig ;)

Love you

Gunnfríður

Núna er rétt rúm vika þar til að djammið góða verður :D Vá hvað verður sjúklega gaman. Gallblöðrulausar eður ei verður bara gaman og geggjaðstuð :) Broadway er stefnan og hef ég heyrt að sumir eru að dusta af flörtinu sínu svona eins og Þórdís ;) Hún ætlar svo að smita okkur sem er bara gott plan :) Annars ætla ég að fara að leita að Jet black Joe diskunum sem ég á að eiga einhver staðar.

Keypti mér bók í gær. Heitir Big book of bad ass shots! Svo það verður kannski eitthvað prófað þann 21. des ;) Eins gott að ég er ekki að fara vinna fyrr en fjögur daginn eftir :D Jæja ætlaði bara aðeins að bulla hérna.

Heyrumst

Gunnfríður

Ég er æði!

Your Seduction Style: The Natural

You don’t really try to seduce people… it just seems to happen.
Fun loving and free spirited, you bring out the inner child in people.
You are spontaneous, sincere, and unpretentious – a hard combo to find!
People drop their guard around you, and find themselves falling fast.

Arftaki minn

Já ég hef fundið góðan arftaka í allri vitleysu minni. Það er góð vinkona mín sem að er og verður mér ávallt mjög kær! Hún hefur fallist á það að taka við af mér og standa í þessu hözzli í staðin fyrir mig. Sem sagt 21. desember ætlar Anna að sjá um það að hözzla í staðin fyrir mig. Hún tók mjög vel í það og sýndi engan mótþróa ;) Ég er nefnilega í fýlu út í karlkynið í þessu landi og í öðrum löndum svo að það verði nú hægt að tala um eitthvað á KFC ætlar Anna að skella sér í einn eða tvo kannski bara þrjá stráka 21. des. Auður er notla gift svo að við viljum nú ekkert heyra um sturtuferðir þeirra hjóna. En hvernig er það með Þórdísi Kötlu? Er hún ekkert að mála heiminn bleikan??? Hvað á að gera af sér 21. des. Þórdís?  Ahh þú ert með mér í fýluklúbbnum ekki satt? Það er líka bara cool!

Bögg bögg

Gunnfríður kókos

Stjörnuspá

Sporðdreki: Peningamál eru mikilvæg og þú verður ánægður með að sjá meira fjárstreymi. Þegar þér líður vel með sjálfan þig ertu kynæsandi. Einhver er að horfa.

Ok, döö! Það eru að koma jól og ég á eftir að vera með annan fótinn í vinnunni. Það þýðir bara að ég fái fullt af pening.

Einhver er að horfa? Hversu perralegt er .að? Eins gott að mér líður ekki vel með sjálfan mig svo ég sé ekki kynæsandi. Það er líka bara skítur að vera kynæsandi. Það er bara fyrir homma og kerlingar!

Smell you later

Gunnfríður.

« Older entries